Rut
16.03.2010 09:14:32 / rutla

kaka

Á sunnudaginn átti Jóhanna litla frænka afmæli.
þá verður að baka köku :haha:


ég er engin bakarameistari. Hér sést það helsta sem þurfti í kökuna :p



og svona var útkoman:


Frekar subbuleg, enda var hún subbulega góð ;)
og svo smá þeyttur rjómi með og fullt af ííískaldri Léttmjólk með klaka. YNDISLEGT :haha:

maginn minn var samt ekki jafn sáttur og sálin mín :d hehehe....

En ég mæli með þessu kremi: hvítt Toblerone, smá mjólk, hitað í öbbanum. Hrært vel vel vel saman, skelt svo karamellu súkkulaði útí og hitað betur og hrært svo meira. og VOLA komið mega sega gott kökukrem :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2010 10:07:08 / rutla

jakk...

hahhaa.... :haha:  Ég bjó til Hafrakoddana í gær.  GUÐ:!:  Hriiikalega voru þeir nú vondir... er ég svona lélegur bakari, eða eru bragðlaukarnir mínir bara ekkert að fýla þetta gums? :p
Ég ákvað samt að bæta fullt fullt fullt af kókos í uppskriftina til þess að bragðbæta, sembeturfer því það er alveg hægt að troða þessu í sig, en ef ég hefði sleppt kókosnum þá hefði þetta líklega farið beint í ruslið, eða handa krumma :)
Berjagumsið á milli, hindberjagums, það bragðast svipað og varalitur hehehe... :d Ég get ekki sagt að ég sé mikill fan af varalitabragði :haha:
Eeeeen þar sem ég hendi ekki mat, þá auðvitað tók ég einn kodda með mér í vinnuna og ætla að jappla á honum, þamba bara mikið vatn með til að kyngja 8|

Þannig að svona hollustudót sem á að vera gott, það er ekkert gott:!: Munið það ;)

            
Góða helgi

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2010 10:47:19 / rutla

Þriðjudagur

ákvað að blogga bara smá.

langaði aðallega bara að benda á tvö skemmtileg blogg.

þetta er hrikalega skemmtilegt og fræðandi blogg fyrir þá sem eru að hugsa um heilsuna :haha:

og svo er það þetta, ef ykkur vantar hugmyndir af góðum og hollum mat. Reyndar er þarna líka góður og smá óhollur helgarmatur :haha:

ég ætla allavega að prufa að búa til hafrakoddana. Og vonandi heppnast þeir vel svo Haddi minn litli verði ánægður með kéllu sína :d

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2010 10:41:42 / rutla

Amy og Slash

Ekki oft sem Amy Winehouse og Slash mæta til Grundarfjarðar.
En það gerðist þessa helgina.
Helvíti góð helgi maður:!:





svo er spurning um að læsa þessu helvíti aftur. Maður er í 1. eða 2. sæti á þessum blessaða blog.central lista... og ekki veit ég hvað það er:!:
Og einhverjar litla OMG-gelgjur eins og ég vil kalla þær farnar að kommenta :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2010 14:12:19 / rutla

Góða helgi


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.02.2010 10:58:36 / rutla

já þið segið það.

.

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2010 11:06:37 / rutla

Föstudagsbrandari

Fékk þennan sendan í morgun:


Do you know why six is afraid of seven?......because seven eigt nine



hahahah....   :haha:


Góða helgi:!:
Ég ætla að skemmta mér tryllt vel á þorrablótinu á morgun!:!:  8| 8) :d


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2010 10:43:13 / rutla

Léleg hugmynd!!!

jáááá... þetta er ekki alveg ég sko að vera með svona mega blogg:!:  :haha:
Nenni ekkert að blogga alla daga sko. Þannig að kannski blogga ég bara með myndum ef ég skyldi elda eitthvað hollt og gott eða gera eitthvað sniðugt hmm... :p

Þetta var t.d. eina holla sem ég lét ofaní mig í gær:


Ég borðaði ekki einusinni alla bátana, Haddi hjálpaði mér með það :)

Svo til að halda mér vakandi í vinnuni eftir alveg hriiiiiikalega slæmann svefn. Já sko, þetta er fyrsti þriðjudagur í marga marga marga mánuði sem ég vakna ekki kl 5:15 til þess að fara í spinning. Ég svaf fáránlega illa, illt í bakinu og hálsinum og dreymdi svooo fríkí og viðbjóðslegan draum að ég var svo uppgefin þegar ég vaknaði og smá hrædd :$ að ég bara snoozaði í fyrsta skipti í mörg ár. 
(En það var nú ekki ástæðan fyrir því að ég fór ekki í spinning í morgun, það var löngu ákveðið að fara ekki um morguninn, heldur prufa að fara kl 17)
þannig að JÁ ég er semsagt þreytt í vinnuni og þá fæ ég mér svona:


þarna sést ofaní flöskuna mína. Þetta er grænt kalt te. Það heldur mér vakandi :haha:


Og, ég er alltaf étandi... maður verður nú að fá næringu skooooo 8)
þannig að í kaffinu fékk ég mér þetta:

Ég hef ekki hugmynd um hvort þetta sé eitthvað sem er gott að éta í kaffinu. En þetta er Hámark próteinsjeik með vanillubragði, banani, eplabitar og svo græna teið.

já þetta var leiðinlegt.
og þessvegna var þetta léleg hugmynd ;)
Næst þegar ég nenni að rita eitthvað hérna, þá verður það kannski bara skemmtilegt:!: haaaaaa.... :p


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2010 15:41:05 / rutla

Hollustu bloggið byrjar ekki vel!!!

Var að skoða bloggara sem blogga um það sem þeir éta og gera í gymminu og svona.
Reyndar einhverjar mega skutlur sem eru lærðar næringarfræðingar eða einkaþjálfarar og svoleiðis.
Mér fannst þetta svo sniðugt, fór að hugsa áðan að það væri sniðugt að vera með svona "matardagbók" fyrir ALHEIMINN, þá myndi maður kannski standa sig betur í að éta rétt :haha:  NÓ:!:
Ég mun aldrei breytast.
Núna eru t.d. sólarpönnukökur og alltaf einhverjar veislur í vinnuni. Ég get ekkert bara fengið mér vatn og banana!! 8|


Og svona byrjar hollustubloggið:



pönnsur, mjólk og varla að það sé vatn í hinu glasinu! 8)

Ég fer í ræktina á eftir. Eeeeeeen... það mun taka nokkra daga að hlaupa þetta af sér.

pönnsurnar brögðuðust heavy vel - en töööööluvert of mikið af rjóma fyrir minn smekk.

þangað til næst.
písát!
:d


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2010 10:01:02 / rutla

grænt uppum alla veggi snemma morguns.

:!:
Ég er nú stundum kölluð brussa... og fljótfærin..

En akkurat í gær var ég í rólegheitunum, allt út pælt, ég ætlaði sko að standa mig.
þannig er málið sko.. ég bauðst til þess að hita brauðrétt fyrir Sóley frænku.
Hún var afmælisbarn í gær og ætlaði að koma með heitann brauðrétt og fl. jammígott í kaffitíma í vinnuni. Og þar sem það er enginn ofn í vinnuni þá bauðst ég til þess að hita réttinn, enda bara 3 skref á milli vinnu og heimilis.

Ég fer svoldið snemma yfir (heim) að sansa þetta. Stóð alveg yfir ofninum til þess að allt yrði almennilegt. (ALLT hvað? ég var að hita brauðrétt!!!)
Ég tékkaði á þessu og hann var orðin heitur í gegn, osturinn brúnaður. - Mega girnilegt.
Ég set álpappír yfir til að halda þessu heitu.

Fer í úlpuna, renni upp. tek pottaleppana því ekki má maður brenna sig. (var btw búin að brenna mig við að taka þetta úr ofninum:!: )

fer niður með réttinn, legg það frá mér og fer í skóna og opna hurðina. Allt gert rétt því ekkert átti að klúðrast.
Ég ætla svo að stíga út úr húsinu en neinei, ákvað bara að missa takið á fatinu og hva:!::!:
BRAUÐRÉTTUR ÚTUM ALLA FORSTOFU:!:    
Uppá veggi, á skó, ofaní ÖLL göt á mottuni.
JESS
það var mega kósý að þrífa þetta allt upp.
Mér var EKKI skemmt.
Svo erfiðasta var að fara yfir í vinnu með skottið á milli lappana og segja frá hvað gerðist :s
Sóley kallaði mig bara "litla mín" og gerði grín af þessu.
Sembetur fer var hún með tvær kökur og gat boðið uppá þær :d

En ég bjó til brauðrétt í gær, hitaði hann upp í morgun. Nonni kom svo og hélt á honum yfir í vinnu og ég opnaði allar hurðar fyrir hann. Og rétturinn komst heill inná kaffistofu og allir eru að hakka þetta í sig núna :haha:

písát.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 09:43:30 / rutla

Fitumæling

Jæja.. var í fitumælingu.
Hún kom skítsæmilega út. Tööööluvert betur út en ég átti von á.  Nánast sömu tölur og seinast þegar ég fór í mælingu... sem var fyrir ca 2 árum :haha:  Þannig að ég er bara sátt. Hélt ég væri búin að spiiiikfitna og þyngjast.  En svona er maður ruglaður og með endalausa þráhyggju.

Núna er bara að taka enþá betur á því í gymminu og tóna sig til, já og minka aðeins spikið :haha:

yfir og út.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 11:20:11 / rutla

Lélegur bloggari



Við erum nú svoldið hugguleg haaa...
ef ég hefði nú getað verið eins og manneskja, þá væri þetta bara innrammanleg mynd hehe... ;)
Soffi og Hrefna náttúrulega eins og súpermódel eins og alltaf :d


Ég er vön að hafa langt blogg um árið sem var að líða... það bara gerðist nánast ekki neitt á árinu 2009.
En kannski pumpa ég upp nennuna og set inn annál '09 fljótlega, hann verður þá bara stuttur og leiðinlegur hehehe... :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2010 16:10:32 / rutla

Gleðilegt nýtt ár

GLEÐILEGT NÝTÁR ; ">ALLIR:!::!: :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2009 16:05:36 / rutla

Gleðileg jól


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2009 09:03:31 / rutla

Hækkum þetta lag í botn og tökum Óla á þetta.  :haha:
svo tökum við tempó :)

Muse - Uprising

The paranoia is in bloom, the PR
The transmissions will resume
They'll try to push drugs
Keep us all dumbed down and hope that
We will never see the truth around
(So come on!)

Another promise, another scene, another
A package not to keep us trapped in greed
With all the green belts wrapped around our minds
And endless red tape to keep the truth confined
(So come on!)

Chorus
They will not force us
They will stop degrading us
They will not control us
We will be victorious

Interchanging mind control
Come let the revolution take its toll if you could
Flick the switch and open your third eye, you'd see that
We should never be afraid to die
(So come on!)

Rise up and take the power back, it's time that
The fat cats had a heart attack, you know that
Their time is coming to an end
We have to unify and watch our flag ascend

Chorus
They will not force us anekatips.com
They will stop degrading us
They will not control us
We will be victorious

Hey .. hey ... hey .. hey!
(repeat)

Chorus
They will not force us
They will stop degrading us
They will not control us
We will be victorious

Hey .. hey ... hey .. hey!
(repeat)




RIP kæri spinningfélagi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 59
Heimsóknir
Í dag:  285  Alls: 258023
Klukkan
Dagsetning
19. mars 2010
Leitarbox